Mánudaginn 7. mars mun Arnór Snorrason frá Skógrækt ríkisins fjalla um kolefnisbindingu með skógrækt. Arnór Sighvatsson mun kynna nafna sinn. 3 mín erindi verður í höndum Hinriks Bjarnasonar.Skráning hér
Mánudaginn 14. mars mun Ingólfur Guðmundsson forstjóri Carbon recycling kynna starfsemi þessa merka fyrirtækis sem er það eina sinna tegundar. Fundurinn er á vegum kynningarnefndar og mun Þorsteinn Tómasson kynna Ingólf. Sigurbjörn Gunnarsson mun vera með 3 mín erindi.Fundurinn hefst kl. 18.15 en ga...
Mánudaginn 21. mars mun Rótarýklúbburinn Rvík-Breiðholt fara í heimsókn í Elliðaárstöð Orkuveitu Reykjavíkur. Elliðaárstöð nýr áfangastaður í Elliðaárdal á vegum Orkuveitu Reykjavíkur. Húsaþyrpingin í gömlu torfunni við Rafstöðvarveg fær nýtt hlutverk þar sem skólahópar, fjölskyldur, útivistarfólk...
(Allt sem ég vissi ekki um cannabis plöntuna) Mánudaginn 28. mars mun Gísli Vigfússon læknir og félagi okkar vera með starfsgreinaerindi um cannabis plöntuna. Gísli hefur haft verkjasjúklinga í gegnum tíðina sem hafa bæði löglega eða ólöglega nýtt sér cannabis til verkjastillingar. Auk þ...
Síðasti fundur fyrir páskaleyfi verður haldinn mánudaginn 4. apríl á Grand hóteli. Trausti Valsson skipulagsfræðingur mun fjalla um skipulagsmál í víðu samhengi. Helstu þemu í störfum Trausta eru þróun skipulags í Reykjavík og á höfuðborgarsvæðinu, Íslandsskipulag og byggðamál, sem og breytingar ...
Gleðilega páska!
Fyrsti fundur eftir páska verður haldinn mánudaginn 25. apríl. Þorsteinn Tómasson fjallar um yrkið sitt Heklu.Jón L. Árnason verður með 3 mín erindi. Fundurinn hefst kl. 18:15 eins og venjulega og við mælum með því að fundarmenn komi aðeins fyrr til að spjalla. Skráningu lýkur kl. 10.00 að morg...
Hörður Arnarson forstjóri verður gestur fundarins að þessu sinni og mun fjalla um Landsvirkjun og skyld mál.Fundurinn er í umsjá Þjóðmálanefndar og mun Magnús Hreggviðsson sjá um að kynna Hörð. Jóhann Hjartarson verður með 3mín erindi. Fundurinn hefst kl. 18.15 eins og venjulega og við mælum með því...
Jóhann Þórsson frá Landgræðslunni mun flytja erindi um kolefnisbindingu með landgræðslu og endurheimtingu votlendis.Fundurinn er í umsjá Skipulags- og laganefndar og mun Arnór Sighvatsson sjá um að kynna fyrirlesara. Fundurinn hefst að venju kl. 18.15 en við mælum með mætingu fyrr. Skráning stendur ...
Dr. Þorleifur Friðriksson mun ræða um þjóðir og lendur í Austurvegi í ljósi síðustu tíðinda. Fundurinn er í umsjón ungmennaþjónustunefndar og mun Hinrik Bjarnason kynna fyrirlesarann.Mæting er kl. 18.00 og kvöldverður hefst kl. 18.15Skráning hér: https://eyr-n-ingad-ttir.involve.me/16mai-copy-copy
Sigríður Sunna Ebenesersdóttir, vísindamaður hjá Íslenskri erfðagreiningu, mun ræða um hvernig forn erfðamengi eru notuð til að greina uppruna landnámsmanna. Fundurinn er í umsjá kynningarnefndar og mun Björn Örvar kynna fyrirlesarann. Mæting kl. 18.00 en kvöldverður hefst kl. 18.15Skráning...
Vorferð í Heiðmörk, laugardaginn 28. maí, 2022. 11:00 - Mæting við Elliðavatnsbæ. 11:15 - Skógræktarreitur klúbbsins heimsóttur. Gróðursetning og ávarp Þorsteins Tómassonar 13:00 - Farið að Elliðavatnsbæ og veitingar bornar fram. Auður Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri kynnir helstu viðfangs...
Enginn fundur verður mánudaginn 19. september 2022.
Bjarni Gíslason framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar mun fjalla um starfsemi stofnunarinnar. Elías Ólafsson verður með þriggja mínútna erindi.